föstudagur, 13. október 2006

Sendibréf sveitastúlku

Ástæða þess að ég hef ákveðið að setjast niður og fara að blogga er sú að tvær af mínum yndislegu vinkonum hafa yfirgefið kalda klakann og sest að út í hinum stóra heimi. Þetta þýðir það að nú get ég ekki malað í þeim innihaldslausar nauðsynjar um daginn og veginn eins og vinkonum ber. Afar okkar og ömmur hefðu sest niður og sent vinum sínum vönduð sendibréf, en litla lata sveitastelpan finnst það alltof langsótt og tímafrekt.
Þema og yfirbragð þessa pisla minna eru gömlu góðu sendibréfin og þau eru first og fremst ætluð ykkur mínar kæru vinkonur Brynja og Gharpa.
Vona að fjarlægðin á milli okkar minnki pínulítið í gegnum þessi sendibréf.

2 ummæli:

brynjalilla sagði...

Elsku Hanna Berglind

Takk fyrir þessi fallegu orð og fyrir að byrja að blogga. Hlakka ekkert smá til að byrja að fylgjast með þér í þessum nýja heimi.

Löv
Brynja
ps: vona að það sé í lagi að ég setji þig inn á síðuna mína?

Nafnlaus sagði...

Hæ elsku hanna og til hamingju með frábæra siðu,eins og allt sem þú gerir er frábært,og að hafa fengið að þekkja þig í næstum 18 ar hefur verið mjög gaman við höfum att margar góðar stundir saman alltaf frábært að koma til þín og eins að fa þig hingað suður
mikið hlegið og ekki alltaf gáfulegar umræður en það er það sem mer hefur alltaf fundist mikill kostur við þig maður getur grátið hlegið og hagað sér eins og maður sé ekki 35 ára en þú sagðir mér í einu okkar skemtilegu msn spjalli i dag er ekki rétt að klæmast mikið her þannig að eg ákvað að vera 35 ara og haga mér:)ég mun koma til með að senda þér fleir línur og fylgjast með þér í gegnum þessa síðu eins í sima og vonandi sjáumst við sem fyrst. Kveðja þín Sveinbjörg