já ástæði fyrir langri þögn minni er sú að blessuð talvan mín hætti að hlaða sig og fór því í viðgerð, það sem kom út úr því var að móðurborðið er hrunið og að sjálfsögðu þurfti að panta varahlutinn að utan.
Svo nú er ég bara sambandslaus við umheiminn, það kemur sjálfri mér á óvart hvað ég er orðin háð því að komast á netið lesa mínar fréttir og vinkonubloggið.
Ég reikna ekki með því að fá tölvuna úr viðgerð fyrr en seint í vikunni eða eftir næstu helgi:(svo þögnin heldur áfram hérna megin:(
sunnudagur, 26. nóvember 2006
mánudagur, 13. nóvember 2006
Loksins loksins
omg!!!
að nenna að vera svona nútímalegur og tölvuvæddur þegar maður skilur ekki tölvur og hvernig þær starfa eða ekki starfa, en er sem sagt búin að vera í vandræðum í rúma viku, hef ekki getað bloggað né commentað og mér hefur hreinlega liðið svakalega illa yfir þessu, já fljótt verður maður háður þessum samskiptum.
En sem sagt það sem á daga mína hefur drifið síðan ég var stödd í rokrassgatinu Hafnafirði, sem var by the way mjög gaman, við Sveinbjörg skelltum okkur aðeins niður í bæ, og mín datt aðeins í´ða.
Fór svo og hitti Björgvin litla bró og hans yndislegu kærustu Ásrúnu, þau náttúrulega elduðu góðan mat ofan í mig, við áttum notalega kvölstund á þeirra notalega heimili.
en sem sagt eftir að ég komst aftur noður:
miðvikudagur:
kóræfing
fimmtudagur:
Leikhús, Herra Kolbert - magnað verk!!
föstudagur:
útgáfupartý vegna útgáfu á kennslupakkanum okkar - Lífsleikni í leikskóla
starfsmannapartý á Vélsmiðjunni, bara magnað fillery það:)
laugardagur:
vaknað kl. 0900, skreytti og dekkaði eitt stykki sal,
söng í jarðarför
fór svo á Árshátíð Síðusels, hún var auðvita algjörlega frábær, annað skemmtilegt fillerý það:)
sunnudagur:
sveikst um að syngja í messu:(
fór og hitti Kristínu frænku mína á sjúkrahúsið
fór svo í kaffi til maogpa og hitti þar Haugnesingana alltaf gaman að hitta fjölskylduna og dúllast með þeim.
Sem sagt nóg að gera hjá minni, eins og stundum áður:) en þetta var skemmtileg vika, hitti margt skemmtilegt fólk, t.d. var gaman að komast aftur á kirkjuloftið, var virkilega farin að sakna þess að syngja.

laugardagur, 4. nóvember 2006
Rokrassgatið Hafnafjörður
Sit núna í notalegu íbúðinni hennar Sveinbjargar, sötra öl meðan helv... rokið lemur á gluggana. Það er nú ekki oft sem ég kem hingað suður yfir heiðar og veðurguðinn í góðu skapi, ætli þetta séu einhver skilaboð til mín sem ég er ekki að ná?
Slagveðrið tók á móti mér strax og ég steig út úr vélinni og þegar ég var komin inn í flugstöð var ég blaut upp að hnjám eftir að vaða pollana á flugbrautinni:(
En það versta við þetta allt saman er að ég var EKKI í marimekko regnkápunni minni sem er auðvitað ekki að gera sig þar sem ég fæ nú ekki mörg tækifæri til þess í höfuðstað norðurlands. Maður á nú bara ekki skilið að eiga marimekko regnkápu þegar maður hagar sér svona heimskulega, og hananú, að sjálfsögðu á mér ekki að detta í hug að nota aðra yfirhöfn hérna á suðvestur horninu!!

Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)