sunnudagur, 22. október 2006

Grímuball



Grímuböll þvíííík snilld!!
Já ég fór á grímuball í gærkvöldi, þar voru saman komin um hundrað manns í ótrúlega fjölbreyttum og flottum gerfum.
Þetta grímuball er gott dæmi um hugmynd sem verður að veruleika, ég tek ofan fyrir þessum fersku og framkvæmdaglöðu konum sem að þessu stóðu.
Á grímuballi er ekki annað hægt en að vera í sínu besta skapi og skemmta sér. Öll samskipti eru frálsleg og afslöppuð, auðvelt að kynnast fólki. Fólk tekur þátt í leikjum, ég fékk að vera einn af húnunum þremur, slatta af kaloríum eytt í það!!
Já sem sagt jákvæð og skemmtileg leið til að skemmta sér og kynnast fólki. En á sama tíma velti ég því fyrir mér af hverju þurfum við grímubúninga til þess að geta átt afslöppuð samskipti við fólk og leifum okkur að kynnast, eða bara setjast niður og spjalla?
Hvað sem öllum vangaveltum um samskipti líður þá veit ég það að ég er strax farin að spá í hvað ég á að vera að ári.

3 ummæli:

Guðbjörg Harpa sagði...

Hér er að koma að hrekkjavöku og við erum að reyna að finna út hvað við ætlum að vera. Fyrst var það tveir víkingar eitt sólblóm og einn raabai (veit sko ekki hvernig það er skrifað) en svo langar okkur öllum að vera eins. Ekki það að mig langi að vera í búningi. Ætli það færi mér ekki best að vera bangsimon eða ísbjörn eða rjómakaka. Æ annars hefur þetta örugglega verið geggjað hjá þér. ÖÖÖÖ eða ég veit sko að þetta var geggjað hje hje sein nó mor
knús frá Ameríkunni

brynjalilla sagði...

oh alltaf gaman að vera í grímubúningi og slíðra sig með gervi, einmitt athglisvert hvernig þeir geta virkað á fólk og opnað feimnispúka ofan í tær. En allavega ég ætla að vera einhverskonar púkavampíra á hrekkjavökunni, HB verður beinagrind og Dagrún vampírustelpa..vorum einmitt að setja upp hallóvínskraut. Gaman af þessu ég segi það! Knús dúlla og taktu eftir við erum búin að kaupa okkur hús í Lundi...

brynjalilla sagði...

missing you