miðvikudagur, 21. febrúar 2007

Öskudagurinn



Öskudagurinn er náttúrulega bara snilld. Við stelpurnar á deildinni minni vorum Rauhetta, úlfurinn, amman og veiðimaðurinn. Ég fékk hlutverk veiðimannsins:)
Við fórum með krakkagormana okkar með rútu niður á Slökkvistöð, löbbuðum þaðan í fjögur fyrirtæki. Þetta gekk svaka vel, krakkarnir voru svo dugleg og alveg indislega flott.
Eftir vinnu hitti ég svo Jón og Lárus, litlu súpermennina mína - þeir eru auðvita langflottastir, vissu ekki alveg hvað þeir áttu að halda þegar þeir sáu Veiðimanninn labba inn og Jón var ekki alveg til í að gefa mér koss enda veiðimaðurinn með skegg:) Mamma tók flottar myndir af okkur sem ég gleymi að fá hjá henni, þær koma vonandi inn á næstu dögum

föstudagur, 9. febrúar 2007

Febrúar


Febrúar er svolítið sérstakur mánuður.
Hann er svona eiginlega vendimánuðurinn, jólaallt búið, jólaundirbúningur, jólin og eftir jólin, og jólavísað.
Febrúar er mánuður birtunnar, þar sem sólin sést í marga daga í röð og skýn beint í augun á manni svo maður sér ekki neitt - yndilsega pirrandi. Það er bjart langt fram eftir degi, maður fer heim úr vinnunni í dagsbirtu og vitiði bara hvað? það verður orðið bjart klukkan 0800 á morgnana í lok mánaðarins, alveg hreint yndislegt til þess að hugsa.
Febrúar er líka mánuðurinn þar sem huga þarf að sumarfríinu, hvernær á að taka fimm vikna sumarfríið, hvar og hvernig? Svíþjóð, Usa, Finnland, gamla góða Ísland? allt þetta eða bara eitthvað allt annað.
Febrúar hefur líka sundum nú í seinni tíð verið mánuður hitameta, þar sem hitinn hefur farið upp í 18 c, en í ár er hann alveg hreint frábærlega flottur, snjór og frost og sól, frábærlega flott vetrarveður!!
Í febrúar eru líka, bolludagur, sprengidagur og öskudagur - ægilega skemmtileg þrenning. Það kom upp frábær hugmynd um að við stelpurnar á deildinni minni yrðum persónurnar í Rauðhettu og úlfinum, ég fékk hlutverk veiðimannsins, en sú minnsta hlutverk úlfsins, þar sem hún var talin líklegust til þess að standast það að hræða börnin :) heheheh Sú stærsta er rauðhetta og sú nærststærsta amman, svo kem ég sem veiðimaðurinn og sú minnsta úlfurinn, skemmtileg uppröðun í hlutverkin:)
Hvað segið þið hvenig upplifið þið febrúar?

sunnudagur, 4. febrúar 2007

Flottu íþróttaálfarnir mínir



Loksins afmælismyndir



jæja Bebba mín loksins koma hérna afmlismyndirnar sem ég lofaði. Þessir yndislegu strákar eru náttúrulega bara langflottastir:)

laugardagur, 3. febrúar 2007

vantar aðstoð




þarf að velja mynd til að senda með uppskriftunum mínum í Vikudag - lét sem sagt skora á mig !!!
hverja þessara mynda á ég að senda inn?

uppáþrengjandi karlmenn

Júróvisjon í sjónvarpinu, ég sit í sófanum með sólahattsdropa, strepsils, nezeril og klósettpappír allt í kringum mig, uhhuu ég er með svo mikið kvef og þar af leiðandi alveg geggja pirruð!!! og ekki sýst yfir því að öll lögin eru ekki að gera sig í júróvisjón:(

Ásbjörg vinkona kom frá Króknum í dag, takk fyrir það Ásbjörg mín. Fórum á Litlu-Kaffistofuna og fengum okkur feita hamborgara, kók, franskar og koktelsósu ... mmmmm geðveikt svona daginn eftir fyllerí. Fórum svo í Hagkaup og minni tókst að versla sér peysu/skirtu, svaka flott!!

Já starfsmannapartýið í gær var fínt, pizzuát, bjór og svo gin og tonic. Komst að því að hún Katý var leynivinur minn, takk fyrir mig Katý mín, gaman að því hvað hún þekkir mig ... sérstaklega þegar hún gaf mér “wake my up” okudrykkinn, góður húmor þar:) Það er líka yndislegt að fá svona fallega hugleiðingu eins og hana sem ég setti hérna inn í gær, frá einhverjum sem manni þykir vænt um. Takk:)

Fórum svo fimm gellur á Vélsmiðjuna og dönsuðum þar fram undir morgun, vöktum mikla athygli karlpeningsins á svæðinu, þ.e. leiðinlega karlpeningsins, omg!!! hvað þig karlmenn getið verið leiðinlega uppáþrengjandi þegar maður hefur ekki áhuga, af hverju geta þessir áhugaverðu ekki verið svona uppáþrengjandi ha!

föstudagur, 2. febrúar 2007

enn og aftur komin helgi

Föstudagsseinnipartur, sit með tölvuna í kjöltunni, Garðar Cortes í tækinu, Kristall í hendi.
Skemmtileg vinnuvika á enda. Það voru leynivinadagar í vinnunni, mið-fös, magnað hvað svona smá tilbreyting í hvers daginn gerir lífið skemmtilegt, litlar gjafir, gott með kaffinu og falleg orð.
Fékk þessa fallegu visku frá leynivini mínum á miðvikudaginn.

Í dag

Dagurinn í dag
er dagurinn þinn.
Þú getur gert við hann
hvað sem þú vilt.

Gærdaginn áttir þú.
Honum getur þú ekki breytt.
Um morgundaginn veist þú ekki neitt.

En daginn í dag átt þú.
Gefðu honum allt sem þú megnar.
Svo einhver finni í kvöld
að það er gott að þú ert til.



Þetta er heilræði sem ætti að fylgja manni hvern dag, en því miður týnist ég allt of oft í vangaveltum og óánægju yfir því liðna og áhyggjum og stessi yfir því sem er ókomið.
Tíminn líður allt of hratt og er allt of dýrmætur til þess að leyfa sér að eyða honum í svona neikvæðni. Því miður þá virðist það vera svo að þeir sem hafa lent í lífsháska og þeir sem eiga í erfiðum veikindum og vita með nokkurri vissu að ekki sé langt eftir á þessu jarðríki okkar, það er þetta fólk sem lifir fyrir daginn í dag, og gleðst yfir því sem hann færir þeim - höfum það í huga.

En það er líka annar hópur sem lifir bara fyrir daginn í dag og gleðst innilega í hjarta sínu yfir hinu smáa, það eru börnin- tökum okkur þau til fyrirmyndar.


Talandi um það að njóta dagsins í dag og því sem hann hefur upp á að bjóða.
Ég ætla á megafyllerí í kvöld, það er starfsmannapartý og ekki spurning að nýta tækifærið og detta ærlega íða með þessum hressu kellum:) án þess svo mikið sem spá í hvaða áhrif fylleríið hefur á morgundaginn - það er vandamál morgundagsins!!

Ég vil tileinka heilræðið hér að ofan vinkonum mínum sem gefa lífi mínu fyllingu og gleði.