Vinkonur eru svo yndisleg fyrirbæri, já vinkonur segi ég, ætti auðvita að segja vinir. En er þetta svona einfalt, hvenær á maður vin? Er vinur bara vinur ef hann er af sama kyni? Hvað gerir vin að vini?
Vinur er einhver sem hefur áhuga á lífi manns, fylgist með sorgum manns og gleði, hann bæði hlær og grætur með manni.
Vinur fylgist með því helsta í lífi manns, samgleðst, styður við bakið á manni og hvetur mann áfram.
Vinur er líka sá sem maður talar við um lífsnauðsynlegan óþarfa og ómerkilega hluti sem getur verið svo stórkostlega gaman að velta fyrir sér.
Vinur er líka sá sem getur þagað með manni, stundum er það bara alveg nauðsynlegt.
Vinur er nauðsyn!!!
Vinur af gagnstæu kyni ætti að vera skildueign, því eins og við vitum öll þá sjáum við kvk vs kk oft hlutina á svo gjörólíkan hátt, sem ég hef fulla trú á að sé okkur til góðs, já og bara nauðsyn. Ólík sjónarhorn eiga að vera til þess að víkka sjóndeildarhringinn, ekki bara að sá hlutina sem kvk eða kk, heldur í víðara samhengi.
En svo náttúrulega þurfum við konur bara okkar tíma inn í milli til þess að tala um konumál sem ekki er ætlast til að karlmenn skilji, eða eigi að hafa skoðun á!!
laugardagur, 14. október 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Blessuð og sæl litla DUGLEGA sveitastelpa.
Ég var nú fljót að þefa þessa síðu uppi hjá Brynju lillu okkar.
Vonast einnig til að hún sé ekki einungis fyir hana og GHörpu því hér er ég komin í heimsókn og vonandi má ég koma oftar.
En velkomin í bloggheiminn og vona að þú eigir eftir að hafa mikið gaman af þessu.
...og já vinir eru svo sannarlega yndisleg fyrirbæri......
Knús
Áslaug
Halló vinkona ;)
þetta er flott hjá þér að koma með þessa síðu og rétt er þessi speki um vinina og nauðsynlegt að eiga vini af báðum kynjum....
Vonandi hittumst við næstu helgi ;)
ENNN ég tók rúmteppið af rúminu hjá honum HANNESI áðan og ekki geta margar státað sig á því og gripurinn ekki einu sinni heima heldur á vakt hehe... óð saga til að segja frá ;)
Músí lúsí krúsí frábært hjá þér að drífa þig í bloggið! Ekki ertu svo dugleg að senda mér póst hehehe nema einhverjar bjórauglýsingar híhí
Knús frá Usa
Dúllan mín dæ, mig langar að hitta þig og tala um konumál og tja karlamál líka sko hehee, ertu ekkert að hugsa um haustferð til Örebrú??
Hello...
djö.. ég er að vinna næstu helgi bæði kvöldin, fyrst á Magna kvöldi og síðan á árshátíð á laugardag en við finnum bara aðra helgi
knús knús
Skrifa ummæli