mánudagur, 16. apríl 2007
mánudagur, 19. mars 2007
Kominn heim
Það var gott að koma heim í gær eftir yndislega daga í heilsulindinni hafnafirði. Takk fyrir mig Sveinbjörg mín, takk fyrir að taka svona vel á móti mér og dekra svona við mig:)
Hitti líka Björgvin og Ásrúnu, þau yndislegu skötuhjú buðu mér í frábærlega góðar heimalagaðar pizzur og ís með geggjaðri hindberjasósu mmmm:)
Kom norður beint í sunnudagskaffi í Þórunnarstrætið, notalegt að sitja þar og spjalla við gamla settið:)
Eftir vinnu í dag skellti ég mér út á Hauganes til að hitta litlu ormana mína og færa þeim peysurnar og beltin sem ég verslaði á þá í borginni.
Fékk höfrung í matinn með sveppum og sósu- þvílik snilldarsteik!!!
Já það besta við að fara í burtu er að koma aftur heim:)
föstudagur, 16. mars 2007
vá hvað ég er glöð
Er búin að vera eitthvað blue þessa vikuna, óvænt, óþægilegt, en svona er þetta bara og þá er líka bara að takast á við það. Ákvað sem sagt í gærmorgun að drífa mig bara suður - væntanlega það gáfulegasta sem ég gat gert í stöðunni, það er eitthvað svo gott að skipta um umhverfi. Hef það bara gott hérna í sliddunni og rokinu, en það væri líka ekki Hafnafjörður nema þetta væri svona;)
Við Sveinbjörg sátum í eldhúsinu í gærkvöldi yfir bjór/rauðvínsglasi spáðum í spil og bolla, bara snilld það!! Langt síðan ég hef snúið bolla, það er nú alltaf svolítið gaman. Og vitiði bara hvað, já haldið ykkur, það var bara allt morandi í karlmönnum í kringum mig, aldrei verið svona margir karlar í spilunum:) Spáin hljóðar upp á karlmenn og hamingju - hmmm ... ég var nú bar að velta því fyrir mér hvort þetta væru ekki bara shjarmörarnir sem heilla mann á barnum, þeir eru sjaldan huggulegri en einmitt þá, það hafa fleiri karlar reynt við mig á barnum síðan ég byrjaði að vinna þar í haust, heldur en öll síðustu 20 árin hehehe!!!! já svona er nú það.
jæja reikna með því að við Sveinbjörg séum að fara að pæjast:) kíkja í búðir og fá okkur kannski góðan kaffibolla einhvernstaðar- hver veit.
Í fyrramálið ætla ég svo að baka svampbotnana í fermignartertuna hennar Lovísu, sem á að ferma á Skírdag, kökuna set ég svo saman daginn fyrir fermingu, skellum inn í hana góðri fyllingu og svo marsípani yfir, hljómar vel ekki satt, maður er nú ekki hússtjórnarskólagengin fyrir ekki neitt heheh!!!
Vona að þið eigið góða helgi framundan
kossar og knús
halló Hafnafjörður
Skellti mér sem sagt í Hafnarfjörðinn í gær, er í geðheilsuferð:)
Eins og alltaf þegar ég er hér þá er slidda og skítur:(
en samt alltaf jafn undursamlega yndislegt að vera komin hingað í Brattholtið.
Kossar og knús í bili
miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Öskudagurinn
Öskudagurinn er náttúrulega bara snilld. Við stelpurnar á deildinni minni vorum Rauhetta, úlfurinn, amman og veiðimaðurinn. Ég fékk hlutverk veiðimannsins:)
Við fórum með krakkagormana okkar með rútu niður á Slökkvistöð, löbbuðum þaðan í fjögur fyrirtæki. Þetta gekk svaka vel, krakkarnir voru svo dugleg og alveg indislega flott.
Eftir vinnu hitti ég svo Jón og Lárus, litlu súpermennina mína - þeir eru auðvita langflottastir, vissu ekki alveg hvað þeir áttu að halda þegar þeir sáu Veiðimanninn labba inn og Jón var ekki alveg til í að gefa mér koss enda veiðimaðurinn með skegg:) Mamma tók flottar myndir af okkur sem ég gleymi að fá hjá henni, þær koma vonandi inn á næstu dögum
föstudagur, 9. febrúar 2007
Febrúar

Febrúar er svolítið sérstakur mánuður.
Hann er svona eiginlega vendimánuðurinn, jólaallt búið, jólaundirbúningur, jólin og eftir jólin, og jólavísað.
Febrúar er mánuður birtunnar, þar sem sólin sést í marga daga í röð og skýn beint í augun á manni svo maður sér ekki neitt - yndilsega pirrandi. Það er bjart langt fram eftir degi, maður fer heim úr vinnunni í dagsbirtu og vitiði bara hvað? það verður orðið bjart klukkan 0800 á morgnana í lok mánaðarins, alveg hreint yndislegt til þess að hugsa.
Febrúar er líka mánuðurinn þar sem huga þarf að sumarfríinu, hvernær á að taka fimm vikna sumarfríið, hvar og hvernig? Svíþjóð, Usa, Finnland, gamla góða Ísland? allt þetta eða bara eitthvað allt annað.
Febrúar hefur líka sundum nú í seinni tíð verið mánuður hitameta, þar sem hitinn hefur farið upp í 18 c, en í ár er hann alveg hreint frábærlega flottur, snjór og frost og sól, frábærlega flott vetrarveður!!
Í febrúar eru líka, bolludagur, sprengidagur og öskudagur - ægilega skemmtileg þrenning. Það kom upp frábær hugmynd um að við stelpurnar á deildinni minni yrðum persónurnar í Rauðhettu og úlfinum, ég fékk hlutverk veiðimannsins, en sú minnsta hlutverk úlfsins, þar sem hún var talin líklegust til þess að standast það að hræða börnin :) heheheh Sú stærsta er rauðhetta og sú nærststærsta amman, svo kem ég sem veiðimaðurinn og sú minnsta úlfurinn, skemmtileg uppröðun í hlutverkin:)
Hvað segið þið hvenig upplifið þið febrúar?
sunnudagur, 4. febrúar 2007
Loksins afmælismyndir
laugardagur, 3. febrúar 2007
vantar aðstoð
uppáþrengjandi karlmenn
Júróvisjon í sjónvarpinu, ég sit í sófanum með sólahattsdropa, strepsils, nezeril og klósettpappír allt í kringum mig, uhhuu ég er með svo mikið kvef og þar af leiðandi alveg geggja pirruð!!! og ekki sýst yfir því að öll lögin eru ekki að gera sig í júróvisjón:(
Ásbjörg vinkona kom frá Króknum í dag, takk fyrir það Ásbjörg mín. Fórum á Litlu-Kaffistofuna og fengum okkur feita hamborgara, kók, franskar og koktelsósu ... mmmmm geðveikt svona daginn eftir fyllerí. Fórum svo í Hagkaup og minni tókst að versla sér peysu/skirtu, svaka flott!!
Já starfsmannapartýið í gær var fínt, pizzuát, bjór og svo gin og tonic. Komst að því að hún Katý var leynivinur minn, takk fyrir mig Katý mín, gaman að því hvað hún þekkir mig ... sérstaklega þegar hún gaf mér “wake my up” okudrykkinn, góður húmor þar:) Það er líka yndislegt að fá svona fallega hugleiðingu eins og hana sem ég setti hérna inn í gær, frá einhverjum sem manni þykir vænt um. Takk:)
Fórum svo fimm gellur á Vélsmiðjuna og dönsuðum þar fram undir morgun, vöktum mikla athygli karlpeningsins á svæðinu, þ.e. leiðinlega karlpeningsins, omg!!! hvað þig karlmenn getið verið leiðinlega uppáþrengjandi þegar maður hefur ekki áhuga, af hverju geta þessir áhugaverðu ekki verið svona uppáþrengjandi ha!
föstudagur, 2. febrúar 2007
enn og aftur komin helgi
Skemmtileg vinnuvika á enda. Það voru leynivinadagar í vinnunni, mið-fös, magnað hvað svona smá tilbreyting í hvers daginn gerir lífið skemmtilegt, litlar gjafir, gott með kaffinu og falleg orð.
Fékk þessa fallegu visku frá leynivini mínum á miðvikudaginn.
Dagurinn í dag
er dagurinn þinn.
Þú getur gert við hann
hvað sem þú vilt.
Gærdaginn áttir þú.
Honum getur þú ekki breytt.
Um morgundaginn veist þú ekki neitt.
En daginn í dag átt þú.
Gefðu honum allt sem þú megnar.
Svo einhver finni í kvöld
að það er gott að þú ert til.
Tíminn líður allt of hratt og er allt of dýrmætur til þess að leyfa sér að eyða honum í svona neikvæðni. Því miður þá virðist það vera svo að þeir sem hafa lent í lífsháska og þeir sem eiga í erfiðum veikindum og vita með nokkurri vissu að ekki sé langt eftir á þessu jarðríki okkar, það er þetta fólk sem lifir fyrir daginn í dag, og gleðst yfir því sem hann færir þeim - höfum það í huga.
En það er líka annar hópur sem lifir bara fyrir daginn í dag og gleðst innilega í hjarta sínu yfir hinu smáa, það eru börnin- tökum okkur þau til fyrirmyndar.
Talandi um það að njóta dagsins í dag og því sem hann hefur upp á að bjóða.
Ég ætla á megafyllerí í kvöld, það er starfsmannapartý og ekki spurning að nýta tækifærið og detta ærlega íða með þessum hressu kellum:) án þess svo mikið sem spá í hvaða áhrif fylleríið hefur á morgundaginn - það er vandamál morgundagsins!!
Ég vil tileinka heilræðið hér að ofan vinkonum mínum sem gefa lífi mínu fyllingu og gleði.
föstudagur, 26. janúar 2007
lati bloggarinn
Þessi vika er búin að vera bara nokkuð góð. Byrjaði með skipulagsdegi á mánudaginn, margt gott sem við komumst yfri að gera, góður dagur miklar umræður um þarfa hluti. Ég búin að vera í vinnuhópi ásamt tveimur öðrum síðan í október, að vinna tillögur að nýju dagskipulagi. Það gekk mun betur en ég hafði þorað að vona, þ.e. við áttum von á mjög heitum og öflugum umræðum. Ekki svo að skilja að það hafi ekki skapast umræður og fólk skipts á skoðunum, en umræðan var fagmannleg, margar góðar skoðanir komu fram, svo er bara að sjá hvað kemur út úr þessu öllu saman þegar nefdin nær að hittast aftur og vinna úr þeim punktum sem fram komu, en allir voru látnir segja sína skoðun á tillögunni. Já maður verður að vita hvers vegna verið er að breyta og hvað er það sem verið er að sækjast eftir með breytingunum.
Var gestakokkur hjá Snjólaugu stjóra á miðvikudaginn, eldaði hlýra að hætti Sigga Hall. svaka góður réttur það, sem féll í kramið á matargestum, 4 konum á aldrinum 19-54. Horfðum svo á Bollywood- mynd eftir matinn, algjöra snilld sem ég man ekki hvað heitir en er endurgerð mydnarinnar Hroki og heypidómar (æji kann ekki að skrifa nafið á ensku) findin og skemmtileg mynd, með dansi, söngvum og flottum búningum.
Er svo að vinna í kvöld, fæ svo þá frændur mína Jón og Lárus um hádegi á morgun, en þeir ætla að gista í Keilusíðunni hjá Hönnu Berglind (eins og þeir kalla mig alltaf þessa dagana:) Svo það er heljarinnar dekur framundann.
Vona svo bara að strákarnir okkar í Þýskalandi standi sig á morgun og sunnudag- áfram Ísland!!!!
skrítin frænka!!
Ég dreif svo Jón Egli og Lárus Inga með mér út á göngu síðasta laugardag þar sem ég þurfti að fara á bókasafnið og finna lopapeysuuppskrift þar sem ég er að prjóna á þá bræður lopapeysurnar sem ég hef ætlað mér að gera síðan þeir fæddust!!! Þetta var yndislegur göngutúr, þó að hann flokkist nú samt væntanlega ekki undir heilsurækt, þar sem farið var yfir á hraða 3ja ára:) Þar sem við erum að vinna okkur heim á leið var Lárus kominn á undan mér og Jón Egill hafði dregist afturúr, ég kalla til Lárusar "stoppaðu við verðum að bíða eftir Jóni Agli" þá lítur hann á mig þungur á brún og segir "hann heitir ekki nagli" !!! þeir hömsuðust svo við það báðir að segja mér að hann héti Jón Egill en ekki nagli - rugluð þessi frænka !!!
Fór svo til Möggu móðu (móðursystur mömmu, svona eins og í Elíasar bókunum) til að fá lánaða sokkaprjóna svo ég geti byrjað á ermunum, en ég er sem sagt búin með tvo búka. Að sjálfsögðu átti hún prjóna bæði no 3 og 41/2 eins og gamalli frænku sæmir:)
mánudagur, 15. janúar 2007
Janúar
En allavegana, göngutúrar eða ekki þá er allavegana magnað að vera byrjuð aftur í sundleikfiminni eftir mánaðar jólafrí. Fyrsti tíminn var í kvöld og það var yndislegt að liðka og teigja á stirðum og aumum líkamanaum. Svona í tilefni af fyrsta sundtíma ársins þá ætla ég að láta fylgja hérna með vísu sem ég samdi fyrir litljujól sundleikfiminnar. Það var nefnilega þannig að ég, já ég sjálf, stakk upp á því að allir kæmu með frumsamið ljóð á litlujólunum. Almennt var vel tekið í þessa hugmynd mína, en hún þróaðist þó í að það laumast mátti í smiðju annarra ef fólki hugnaðist ekki að setjast niður og semja. Svo nálgast litlujólin þá allt í einu rann upp fyrir mér að ég kann ekkert að semja vísur - ekki séns. En það kom samt ekki til greina annað en að setja saman vísu það var jú ég sem stakk upp á þessari vitleysu. Tveimur kvöldum fyrir litlujólin kom svo vísan bara alveg eins og að sjálfu sér.
fettir og brettir og beygir.
Litla stelpan með mömmu sinni
í gamlingjamanna leikfiminni.
sunnudagur, 14. janúar 2007
HALLÓ HEIMUR!!!
Nýja árið farið að síga af stað, með ný tækifæri í fangi sér.
Ég kveð gamla árið með bros á vör, þetta var gott ár fullt af góðum minningum með vinum og fjölskyldu.
Ferðalög, matarboð, réttardagar, uppsetning myndilistarsýningu, landsmóti, stelpupatýið, sjóstöng, varð tvöföld guðmóir, byrjaði í nýrri vinnu, gekk yfir Vaðlaheiði, flutti í nýja íbúð, já þetta er búið að vera yndislegt ár, takk fyrir þið sem deildið þessum minningum með mér.
Hlakka til að hlaða inn nýjum minningum með fjölskyldu og vinum.








