sunnudagur, 15. október 2006

Látið boðskapinn berast






Þakka ykkur fyrir að kíkja hingað inn, að sjálfsögðu eru allir velkomnir!!

Góð helgi á enda, helgi deilt með fjölskyldu og góðum vinum.
Litli bróðir renndi norður alltaf gott að hitta hann. Hinn litli bróðirninn, kona og synir komin heim úr viku haustfríi í sumarbústað á suðurlandi. Það er notaleg tilfinning að sakna og upplifa gleðina þegar maður hittir á ný. Maður saknar vegna þess að maður elskar.
Það eru yndisleg forréttindi að eiga fjölskyldu, fjölskyldu sem maður nýtur að vera með, fjölskyldu sem nýtur þess að sitja saman við eldhúsborðið og vera saman, ræða saman um allt milli himins og jarðar.
Það er einfaldleikinn, litlu hlutirnir og hversdagslegu stundirnar sem skipta mestu máli, það eru þessar stundir sem gera fjölskyldu að fjölskyldu.

3 ummæli:

Guðbjörg Harpa sagði...

æ já það var alltaf svo gott að vera boðin í mat á/í Hól og fá hrefnukjöt og annað góðmeti og langt spjall við eldhúsborðið.
Kveðja til þeirra allra
knús Guðbjörg Harpa

brynjalilla sagði...

já það er víst ábyggilegt að fjölskylda sem stendur saman af einstaklingum sem elska og virða hvorn annan og njóta þess að hittast eru forréttindi og unaður...knús til ykkar allra

hannaberglind sagði...

já sunnudagssteikin hennar mömmu klikkar ekki, og er aldrei betri en í þynnkunni!!!