Lasin, hvað gerir maður þegar maður þarf að vera heilan dag heima vegna þess að líkaminn hefur tekið ástfóstri við postulínið ojjjj:(
jú ég gæti tekið til í geymslunni sem er búið að vera á dagskrá of lengi
eins væri hægt að klára að mála dyrakarmana ... hmmmm
skipuleggja herbergið og hengja upp myndir, jú það er vissulega kominn tími á það
liggja á Netinu,
horfa á góða mynd
hringja í vini
þvo gluggana
fara yfir "alltí drasli" kassana sem bíða mín niður í geymslu
... hlust á rás eitt
já hlusta á rás eitt, nú af öllum tímum er tækifærið. Mér þroskaðra fólk eins og t.d. foreldrar mínir, eru alltaf að benda mér á áhugaverða þætti á rás eitt. Rás eitt er nefnilega útvarpsstöð sem maður getur ekki haft svona í bakgrunninum eins og poppstöðvarnar bylgjuna og effemm, maður þarf nefnilega að hlusta. Og viti menn, þegar maður hefur tíma til þess að hlusta þá opnast manni nýjir heimar. Á rás eitt er skemmtilegur fróðleikur um menn og málefni, öðruvísi tónlist og einhvernvegin umfram allt rólegheit. Já á rás eitt er enginn æsingur, ekkert stress, engin læti.
Því skora ég á ykkur vinkonur mínar að stilla á rás eitt, heima í stofu, í bílnum eða netinu. En til þess að það virki þá þýðir ekkert að vera í erilsamri vinnu, hafa sjónvarpið á og/eða alla fjölskylduna á harðahlaupum í kringum sig.
Rás eitt á maður bara einn með sjálfum sér - rás eitt er dekur!!!!
mánudagur, 16. október 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Við tökum sérstaklega á fyrir þig í leikfimi vatnsins í kvöld!! Láttu þér batna :)
ÆÆÆÆÆÆ nei ekki rás eitt og get barasta ekki þolað sinfóníur á þessari stöð og ég verð svo pirruð hef örugglega fengið nóg af þessari stöð í bili...
en það er nógur tími til að taka til og klára en reyndar er bara að byrja á þessu...
ENNN Rás eitt nei takk
veistu ég einmitt get haft rás 1 sem bakgrunnshljóð, elska stemminguna, rólegheitin og þessa ömmulegu tilfinningu sem hún færir í hús. Vona að postulínið fari að fara inn í skáp!
Hljómar ótrúlega spennandi að sitja á klósettinu með niðurgang og hlusta á Rás1. Quality time!
hvernig ertu í rassaling?
Valli þú ert náttúrulega alveg með réttu hugmyndina:)
já Brynja kúkogpiss tímabilið runnið sitt skeið - heheh
og ása mín það er nú margt annað en sinfoníur á rás eitt, ég er nú ekki komin á það þroskastig að geta hlustað á þær, svo þú getur alveg verið óhrædd ennþá, en þú getur rétt ýmindað þér hvað ég er að fara að gera um helgina, þar sem ég er ekki að fara á djammið með þér - hmmm
Skrifa ummæli