



Brynja hafði orð á því að í mér væri að finna listamann. Af því tilefni langar mig að deila með ykkur nýjasta verkefninu mínu.
Þannig er mál með vexti að mig langaði að notast við myndvarpa í næsta vinasöng í leikskólanum og varpa upp myndum meðan við syngjum "Rauðhetta litla". Eins og stundum áður þá lá mér á að framkvæma strax þessa hugmynd mína, en því míður voru engar glærur til á leikskólanum þá stundina:( Þá fékk ég þá frábæru hugmynd að nota tæknina. Leikskólinn á nefnilega skjávarpa og því ekki spurning að gera power point sýningu. Ég settist því niður og gerði myndir í tölvunni. Það kom mér á óvart hvað það er gaman að vinna myndir á þennan hátt. En á sama tíma er ég svekkt út í sjálfa mig að hafa ekki gert þetta miklu fyrr og það með börnunum. Hlakka til að leyfa þeim að kynnast þessari hlið á myndmenntinni og virkja sköpunargleðina á þennan hátt.
9 ummæli:
Vissi ekki af síðunni þinni fyrr en nú ... ég verð reglulegur gestur hér inn eftir þetta ...
Snilldar hugmynd hlakka til að fá að heyra meira af henni . hvernig börnin tóku í þetta og svona.
endilega kíktu inn á síðuna mína og svaraðu laufléttu spurningunum mínum ;)
sjáumst á mánudaginn
flottar myndir, myndi ekki vilja mæta þessum úlfi í skógi...Heyrðu viltu ekki skella þér hingað í mat upp úr 25. nóv?
Þetta er flott hjá þér pæja
EN á ekkert að fara að blogga meira????
Um að gera að kíkja svo á myndasíðurnar mínar! var að setja fullt af myndum þar inn
Gugga luggan þín í Usa
Þetta er flott hjá þér pæja
EN á ekkert að fara að blogga meira????
Um að gera að kíkja svo á myndasíðurnar mínar! var að setja fullt af myndum þar inn
Gugga luggan þín í Usa
pússpúss
Hæ frænka mín!
Ég var að frétta af síðunni þinni. Búin að renna yfir hana í fljótheitum, á eftir að gefa mér góðan tíma, svona svipað og maður þarf að gera með ríkisútvarpið rás eitt!
Kveðja úr Reykjavík,
Anna Margrét.
Jahérna hér!
Hanna Berglind bloggari, ja nú er ég svo aldeilis hissa en jafnframt yfir mig glöð :D
Nú verður mun auveldara að fylgjast með þér elskuleg :)
Væri til í að vera komin í smá kjaftvaskaspjall með ykkur unnsu núna :)
Endilega kenndu svo gömlu grímseyjarhúsmóðurinni á msn :)
knús knús
Helga fríður
Hæ er gamla eitthvað að missa dampinn í blogginu :)
hilsen Bjöggi lille bror
Ég var bara svona að spá sko...hvað af þessu er úlfurinn?
Skrifa ummæli