fimmtudagur, 19. október 2006

Hlutverkaleikur lífsins


Hver er meðal fjöldi þeirra hlutverka sem ég gegni á einni meðalviku?
Símaskráin segir að ég sé leikskólakennari, svo er ég líka dóttir, barnabarn, systir og mákona, vinkona, frænka, barþjónn, kórfélagi, sundfélagi, ökumaður og uppáhaldið mitt síðastliðna 34 mánuðina FÖÐURSYSTIR:)

Þetta er nú slatti á einni viku og spurning hvort ég gleymi ekki einhverju.
Draga þessi ólíku og mjög svo mismunandi hlutverk fram mismunandi karakter í mér, eða er ég alltaf sama Hannan? Er það hægt? Leikskólakennarinn, sundfélaginn, barnabarnið og vinkonan er þetta allt eitt og sama Hannan? Er það eðlilegt að hlutverkin dragi fram mismunandi karakter, eða er það einmitt óeðlilegt?

Hver er þessi Hanna Berglind sem þið þekkið?
Hvernær er ég BARA Hanna Berglind? Er hægt að vera eitthvað BARA?

Mismunandi karakter eða ekki, þá er það samt oft á tíðum gott að geta flakkað á milli hlutverka og hvíla sig á einu hlutverkinu með því að fara yfir í eitthvað af hinum hlutverkunum.
Byrja daginn á því að vera leikskólakennari, verða svo föðursystir og enda svo daginn á því að vera kórfélagi - frábær blanda á einum degi!!

Hljómar þetta kannski eins og dagbók geðklofa??!!!

5 ummæli:

Guðbjörg Harpa sagði...

Púff þetta fer nú að verða of erfitt fyrir mig sko. Ég er nú bara búin að vera að sleikja sólina í dag án þess að þurfa að vera að hugsa hver ég er. EN errtu ekki líka stundum viðskiptavinur, brjálaða kellingin í umferðinni, sjóarinn og fjallageitin? ég gæti talið endalaust upp hvað þú ert en fyrir mér ertu alltaf sæta Hanna vinkona mín
Knús frá mér í Kaliforníusólinni

brynjalilla sagði...

þetta hljómar eins og lýsing á manneskju sem kann að lifa lífinu sínu vel...njóttu ólíkra hlutverka í lífinu þínu og þess hvað þú ert dásamlega fjölhæf manneskja...þú gleymdir einu hlutverki en það er listamannshlutverkið þitt, þú hefur svo gott auga fyrir fallegum hlutum og fólki.

Nafnlaus sagði...

Vá hvað þig vantar eitthvað að gera miðað við þessa rosalegu pælinapistla þína:) Ég get látið þig fá eitt og eitt burðarþolsdæmi ef þú þarft eitthvað til að hugsa um :)
Kv. frá litla Bróður í Borg óttans

hannaberglind sagði...

já Bjöggi mínn það er greinilegt að ég hef alltof mikinn tíma aflögu, það er spurning að finna einhver verkefni fyrir mig fljótlega áður en ég verð klikkaða piparjúnkan í fjölskyldunni!!! heheh

Nafnlaus sagði...

Elsku kerlingin mín. Ég held að ég verði að fara að drífa mig norður og setja spotta í annan fótinn á þér. Þú ert orðin svo háfleyg að ég er hrædd um að týna þér upp í himinninn : ) Hafðu það sem allra best, kveðja úr Kópavogi.