þriðjudagur, 31. október 2006

Heilsulindin Grímsey

Ástæða þess að hljótt hefur verið um mig síðustu daga er sú að ég skellti mér í heisulindina mína Grímsey. Var þar frá föstudegi til mánudags.

Það er bara algjör snilld að eiga sér svona heilsulind, stað sem ætlaður er til dekurs og afslöppunar í einu og öllu. Á heilsulindum er ekkert búðarráp, kaffihúsabrölt, eða heilsuspillandi akstur, á heilsulindum losar maður um spennu og slappar af.
Á minni heilsulind í Grímsey snýst lífið fyrst og fremst um vinskap og að taka lífinu með stóískri ró, borða góðan mat, gæða sér góðum bjór og blöndu að hætti innfæddra;)

Einmitt þannig var þessi helgi, ég rétt náði að melta á milli stórmáltíða og glæsisteika, hitti skemmtilegt fólk, keyrði út póstinn, þar sem guttinn á heimilinu hljóp með hann inn í hús ;)
Mestur og bestur tíminn fór í vinkonuspjall og notalegheit ásamt dekri við börnin á heimilinu.
Elskulega Unnur takk fyrir elskulegheit og vináttu þína.

Það sem fullkomnar yndislega helgi eins og þessa, er góð heimkoma.

Það var notalegt að stíga á land eftir sjóveikislausa sjóferð og renna niður á Hauganes til að hitta uppáhalds herramennina mína. Fá svo afganga af sunnudagssteikinni, svona svo ég fái ekki fráhvarfseinkenni eftir matarsvall helgarinnar, enda svo daginn á því að fara í sundleikfimi og teigja þar og sveigja stirðan líkamann.
Koma svo heim í penthásið, planta sér í sófann og kveikja á sjónvarpinu og tölvunni !!!!

4 ummæli:

brynjalilla sagði...

oh hvað þetta hljómar yndislega...

Nafnlaus sagði...

Lífið í hnotskurn.
Fjölskylda, vinir og lítil eða stór ævintýri.
Njótum.

brynjalilla sagði...

heyrðu bara að minna þig svo á heilsulindina hér í Örebro...hér verður veisla þann 25. nóv:-)

hannaberglind sagði...

takk fyrir það Brynja mín
engin hætta á því að ég gelymi sænsku heilsulindinni minni:)
en því miður sé ég ekki fram á að komast í matarboðið, þar sem ég var að koma úr vetrarfríi.
En takk samt fyrir frábært boð sæta mín.