föstudagur, 16. mars 2007

vá hvað ég er glöð

vá mér bara brá, átti ekki von á því að þetta myndi ganga. Ég verð bara að halda áfram þó svo að ég viti ekkert hvað ég ætla að segja.
Er búin að vera eitthvað blue þessa vikuna, óvænt, óþægilegt, en svona er þetta bara og þá er líka bara að takast á við það. Ákvað sem sagt í gærmorgun að drífa mig bara suður - væntanlega það gáfulegasta sem ég gat gert í stöðunni, það er eitthvað svo gott að skipta um umhverfi. Hef það bara gott hérna í sliddunni og rokinu, en það væri líka ekki Hafnafjörður nema þetta væri svona;)

Við Sveinbjörg sátum í eldhúsinu í gærkvöldi yfir bjór/rauðvínsglasi spáðum í spil og bolla, bara snilld það!! Langt síðan ég hef snúið bolla, það er nú alltaf svolítið gaman. Og vitiði bara hvað, já haldið ykkur, það var bara allt morandi í karlmönnum í kringum mig, aldrei verið svona margir karlar í spilunum:) Spáin hljóðar upp á karlmenn og hamingju - hmmm ... ég var nú bar að velta því fyrir mér hvort þetta væru ekki bara shjarmörarnir sem heilla mann á barnum, þeir eru sjaldan huggulegri en einmitt þá, það hafa fleiri karlar reynt við mig á barnum síðan ég byrjaði að vinna þar í haust, heldur en öll síðustu 20 árin hehehe!!!! já svona er nú það.

jæja reikna með því að við Sveinbjörg séum að fara að pæjast:) kíkja í búðir og fá okkur kannski góðan kaffibolla einhvernstaðar- hver veit.

Í fyrramálið ætla ég svo að baka svampbotnana í fermignartertuna hennar Lovísu, sem á að ferma á Skírdag, kökuna set ég svo saman daginn fyrir fermingu, skellum inn í hana góðri fyllingu og svo marsípani yfir, hljómar vel ekki satt, maður er nú ekki hússtjórnarskólagengin fyrir ekki neitt heheh!!!

Vona að þið eigið góða helgi framundan
kossar og knús

5 ummæli:

Vallitralli sagði...

En getur þetta tvennt farið saman, karlmenn OG hamingja ?

hannaberglind sagði...

góð athugasemd Valli verð að skoða þetta aðeins betur:)en svo er spurning vil ég karlmennina eða hamingjuna????? hmmm

Nafnlaus sagði...

Það góða við bláu stundirnar er að þær ganga yfir og þá er maður svo þakklátur fyrir þær björtu og nýtur þeirra til fullnustu.
Humm hamingjan felst nú ekki endilega í að "eiga" karlmann.
Kæra Hanna þú "átt" svo margt annað mikilvægara.
T.d. einfaldlega bara það að vera þú.
knús

brynjalilla sagði...

elskulillan ég var svo glöð að þú varst búin að blogga, veita hvað þér finnst gott að vera í Hafnarfirði við eldhúsborðið hennar Sveinbjargar, njótið vel og lengi það er svo góð therapía. Brynjuknús til Hönnulús!

PS: veit um einn myndarlegan einhleypan lækni, hann er rússneskur og víst mjög skemmtilegur og býr í Lundi...bara svona segja þér frá honum sko.

Nafnlaus sagði...

Blessuð gella ...
Loksins blogg frá þér snilldarpenninn þinn :)
Karlmenn eru ekki alltaf hamingja
Hamingjan er ekki alltaf karlmenn
Hamingjan geturm samt sem áður átt samleið með karlmönnum

En fyrst og seinast þá er enginn ábyrgur fyrir þinn eigin hamingju nema þú sjálf!!

Og eins frábær og þú ert þá áttu ekki í miklum vandræðum með það

Ekki láta neinn hafa meiri áhrif á þig en þú villt ... vertu þú sjálf eins og þú ert hamingjusömust!!

Knúsar
Guðrún