Þakka ykkur fyrir yndisleg orð í minn garð - yndislegt að eiga svona gott fólk að.
Það var gott að koma heim í gær eftir yndislega daga í heilsulindinni hafnafirði. Takk fyrir mig Sveinbjörg mín, takk fyrir að taka svona vel á móti mér og dekra svona við mig:)
Hitti líka Björgvin og Ásrúnu, þau yndislegu skötuhjú buðu mér í frábærlega góðar heimalagaðar pizzur og ís með geggjaðri hindberjasósu mmmm:)
Kom norður beint í sunnudagskaffi í Þórunnarstrætið, notalegt að sitja þar og spjalla við gamla settið:)
Eftir vinnu í dag skellti ég mér út á Hauganes til að hitta litlu ormana mína og færa þeim peysurnar og beltin sem ég verslaði á þá í borginni.
Fékk höfrung í matinn með sveppum og sósu- þvílik snilldarsteik!!!
Já það besta við að fara í burtu er að koma aftur heim:)
mánudagur, 19. mars 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
13 ummæli:
Hæ Hanna mín
Velkomin heim.
Ég vona að þú sért orðin hressari og að lífið leiki við þig á ný.
Ég er nú bara að dúllast í höllinni minni því hér er grenjandi rigning :) já það rignir líka í útlöndum hehe.
En þetta með kallana, ætluðum við ekki að búa í 3ja hæða húsi ég þú og ása??? ertu eitthvað að hætta við :)
Vonast til að hitta þig á msn eða skype fljótlega
Elska þig og sakna
þín
Guðbjörg Harpa
hæ beibs, hlakka til að sjá þig vonandi einhverntímann við eldhúsborðið mitt, var annars að spá í þetta með höfrungakjötið úffpúff hljómar eins og hundakjöt í mínum eyrum ja eða mannakjöt...hverju líkist það eiginlega?
hef ekki smakkað hunda né mannakjöt, en hitt veit ég að hvalkjöt yfir höfuð er það besta sem hægt er að frá , frábærlega ljúffengar steikur:)Verð að fá þig einhverntíman við eldhúsborðið mitt og gefa þér góða steik.
eh sko mer finnst hrefnukjöt gott en er ekki viss um ad eg vilji höfrungakjöt... a sko stelpu se, elskar höfrunga og hun er ad verda buin ad smita alla heimilismedlimina af thessari ast. Eg er samt buin ad utskyra fyrir henni ad hun fai ekki Höfrung sem gaeludyr, naggrís í mesta lagi.
Bara segja hæ og ég kíki á bloggið nokkrum sinnum á dag. Væri aldeilis frábært að fá eitthvað nýtt að lesa. Vona að allt sé í fínu og að þú sért búin að jafna þig eftir erfiða Sauðkræklingaferð :)
Hæ frænka!
Vildi bara kvitta fyrir mig, langt síðan ég hef gert það en kíki þó alltaf reglulega hingað inn.
Það væri nú gaman að sjá aðeins framan í þig um páskana ef þú verður heima? Að sjálfsögðu verðum við í sveitasælunni að hlaða batteríin.
Annars vona ég að þú hafir átt huggulegan sunnudag.
Kveðja úr Nökkvavoginum.
Halló
er ekki hægt að blogga á þessa síðu.. er hún alltaf að stríða þér eins í Skagafirðinum ;)
KNús knús
Hei Harpa það búa ekki Kræklingar á Króknum ;/
Ég er nú bara að kíkja við :-)
Já Ása það búa bara kræklingar og krækiberjaling á króknum :)
Vona að allt sé í góðu hjá þér sæta mín.
ég er hérna að steikjast eins og góður sveppur í sólinni
knús frá Kaliforníu :)
Halló
Sakna þín ógurlega
sit hér ein uppi í rúmi. klukkan er 23.46 og föstudagurinn langi að enda. Ég hlakka ógurlega til þess að borða frábæra páskaeggið sem mammagagga sendi mér en núna er hjartað eitthvað svo stúrið og vildi svo innilega vera að tala við góða vinkonu á hinum endanum á veröldinni.
knús mín kæra og ég heyri í þér þegar þú kemur heim :)
GHI
Blogga blogga blogga!
gott að heyra Hannan mín að þér líður betur en ég er farin að sakna þín. Á ekkert að fara að blogga meira.
knús
bendi ykkur á nýja bloggið mitt
blog.central.is/hbj1972
Skrifa ummæli