Sit núna í notalegu íbúðinni hennar Sveinbjargar, sötra öl meðan helv... rokið lemur á gluggana. Það er nú ekki oft sem ég kem hingað suður yfir heiðar og veðurguðinn í góðu skapi, ætli þetta séu einhver skilaboð til mín sem ég er ekki að ná?
Slagveðrið tók á móti mér strax og ég steig út úr vélinni og þegar ég var komin inn í flugstöð var ég blaut upp að hnjám eftir að vaða pollana á flugbrautinni:(
En það versta við þetta allt saman er að ég var EKKI í marimekko regnkápunni minni sem er auðvitað ekki að gera sig þar sem ég fæ nú ekki mörg tækifæri til þess í höfuðstað norðurlands. Maður á nú bara ekki skilið að eiga marimekko regnkápu þegar maður hagar sér svona heimskulega, og hananú, að sjálfsögðu á mér ekki að detta í hug að nota aðra yfirhöfn hérna á suðvestur horninu!!
laugardagur, 4. nóvember 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Hehehe ætlaði einmitt að minnast á Marimekko dótið þitt. Var það ekki alveg nógu dýrt til að þú farir nú að reyna að nota það. Áttu ekki bæði stígvél og regnkápu. Alveg tilvalið að hafa það ALLTAF með þegar maður fer í höfuðborgina :-) því eins og þú veist þá rignir þar í ca 345 daga á ári ef ekki meir.
Knús frá mauramorðingjanum
oh þvílík synd að hafa ekki haft marimekko kápuna og stígvélin með. Ég verð samt að segja að sitja inni með öl í hendi meðan rokið beljar hljómar yndislega. Ég elska rok og hvassviðri og sérstaklega þegar maður er svo nálægt sjónum að gluggarnir þekjast saltúða.
Ég get svo svarið það elsku litla sveitastúlkan mín.
Í henni Reykjavík og hvorki með MARIMEKKO kápuna né stígvélin með. Eins og þú ert alveg óendanlega flott í þessu.
Mundu alltaf að hafa þetta með í farteskinu.
knús
Ég veit ekki með Hafnarfjörð en ég er búin að búa í níu ár í Kópavogi og á ekki Marimekko regndót og kemst bara alveg þokkalega af. Hvernig væri að prófa aðra gististaði, spurning hvort það virkar ekki??????????????
jamm ég var líka á suðurlandinu og í brúðkaupi og þetta var frekar ógeðslegt veður...
en ertu komin heim????
En ég skil að þú hafir ekki tekið fullt af yfirhöfnum þvi að norðurlandinu er veðrið ekki svona ;) hehe
hei ertu ekki að fara að blogga gellan mín yndislega, kem heim til Ak 16.des, hlakka til að knúsa þig.
Skrifa ummæli