omg!!!
að nenna að vera svona nútímalegur og tölvuvæddur þegar maður skilur ekki tölvur og hvernig þær starfa eða ekki starfa, en er sem sagt búin að vera í vandræðum í rúma viku, hef ekki getað bloggað né commentað og mér hefur hreinlega liðið svakalega illa yfir þessu, já fljótt verður maður háður þessum samskiptum.
En sem sagt það sem á daga mína hefur drifið síðan ég var stödd í rokrassgatinu Hafnafirði, sem var by the way mjög gaman, við Sveinbjörg skelltum okkur aðeins niður í bæ, og mín datt aðeins í´ða.
Fór svo og hitti Björgvin litla bró og hans yndislegu kærustu Ásrúnu, þau náttúrulega elduðu góðan mat ofan í mig, við áttum notalega kvölstund á þeirra notalega heimili.
en sem sagt eftir að ég komst aftur noður:
miðvikudagur:
kóræfing
fimmtudagur:
Leikhús, Herra Kolbert - magnað verk!!
föstudagur:
útgáfupartý vegna útgáfu á kennslupakkanum okkar - Lífsleikni í leikskóla
starfsmannapartý á Vélsmiðjunni, bara magnað fillery það:)
laugardagur:
vaknað kl. 0900, skreytti og dekkaði eitt stykki sal,
söng í jarðarför
fór svo á Árshátíð Síðusels, hún var auðvita algjörlega frábær, annað skemmtilegt fillerý það:)
sunnudagur:
sveikst um að syngja í messu:(
fór og hitti Kristínu frænku mína á sjúkrahúsið
fór svo í kaffi til maogpa og hitti þar Haugnesingana alltaf gaman að hitta fjölskylduna og dúllast með þeim.
Sem sagt nóg að gera hjá minni, eins og stundum áður:) en þetta var skemmtileg vika, hitti margt skemmtilegt fólk, t.d. var gaman að komast aftur á kirkjuloftið, var virkilega farin að sakna þess að syngja.
mánudagur, 13. nóvember 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Þú ert nú meiri byttan gamla mín. Til lukku með fína síðu.
Kveðja, hin byttan.
sæl byttan mín, gaman að sjá þig hérna inni:)
Hvernig væri að við myndum nú gleðja Bakkus gamala með okkar gömlu góðu töktum!!!
hey máégveramemm? En annars vildi ég óska þess ég hefði komist í útgáfupartýið er ekkert smá stolt af ykkur til hamingju með þetta allt!
Takk fyrir það Brynja mín
Ef þú ferð inn á akmennt.is þá finnur þú þar frétt og kynningarbækling sem gefur ákveðna hugmynd um útlitið á pakkanum
Mikið er gaman að sjá hvað lífið leikur við þig, hefði alveg verið til í að taka nokkra verslunarmannahelgartakta (úff lengsta orð sem ég hef skrifað langan tíma)með þér.
knús
flottur pakki Hanna, svo spennandi, hann fær pottþétt góðar undirtektir. En heyrðu á ekki að fara að blogga meira?
Skrifa ummæli