Öskudagurinn er náttúrulega bara snilld. Við stelpurnar á deildinni minni vorum Rauhetta, úlfurinn, amman og veiðimaðurinn. Ég fékk hlutverk veiðimannsins:)
Við fórum með krakkagormana okkar með rútu niður á Slökkvistöð, löbbuðum þaðan í fjögur fyrirtæki. Þetta gekk svaka vel, krakkarnir voru svo dugleg og alveg indislega flott.
Eftir vinnu hitti ég svo Jón og Lárus, litlu súpermennina mína - þeir eru auðvita langflottastir, vissu ekki alveg hvað þeir áttu að halda þegar þeir sáu Veiðimanninn labba inn og Jón var ekki alveg til í að gefa mér koss enda veiðimaðurinn með skegg:) Mamma tók flottar myndir af okkur sem ég gleymi að fá hjá henni, þær koma vonandi inn á næstu dögum
8 ummæli:
Ja þetta er sko flottasti veiðimaður sem ég hef séð. Sérstaklega veiðihúfan hans. Greinilega verið lögð mikil elska og alúð í þessa húfu.
Voða voða glöð að þú sért komin aftur af stað í bloggheiminum og ekki láta bloggdótið bila aftur :)
thu ert rosa sexy veidimadur!
hei þið eruð flottastar. Mér finnst þetta góð hugmynd að deildin taki sig saman og klæði sig svona uppá...
Ég ætla samt að vera bara prinsessa áfram mjög þægilegt í palíettupilsinu ;)
En komdu með til USA :)
ertu ekkert odin leid a thvi ad vera alltaf i öskubuningu er ekki öskudagurinn löngu buinn.
Er tíðni blogga með svipuðum hætti og tíðni siglinga var til landsins á miðöldum ???? :)
Sammála Brynju og Guðbjörgu, þú ert veiðilegur veiðimaður.
hæ er ekki allt í góðu
ég held bara að tölvan mín sé að reyna að senda mér skilaboð um það að ég sé ekki boggara kandidat:) Eða hvað á ég að halda, get ekki publisherað bloggið mitt:(
svo þið verðið bara að pirrast með með þangað til að ég finn eitthvað út úr þessu, kannski bara nýja bloggsíðu, en það verður alla vegana fljótlega.
Skaust í borgina í morgun og ætla að vera hérna fram á sunnudag, að dúllast við sjálfa mig:)
Kossar og knús þangað til næst:)
hannaberglind
Skrifa ummæli