föstudagur, 9. febrúar 2007

Febrúar


Febrúar er svolítið sérstakur mánuður.
Hann er svona eiginlega vendimánuðurinn, jólaallt búið, jólaundirbúningur, jólin og eftir jólin, og jólavísað.
Febrúar er mánuður birtunnar, þar sem sólin sést í marga daga í röð og skýn beint í augun á manni svo maður sér ekki neitt - yndilsega pirrandi. Það er bjart langt fram eftir degi, maður fer heim úr vinnunni í dagsbirtu og vitiði bara hvað? það verður orðið bjart klukkan 0800 á morgnana í lok mánaðarins, alveg hreint yndislegt til þess að hugsa.
Febrúar er líka mánuðurinn þar sem huga þarf að sumarfríinu, hvernær á að taka fimm vikna sumarfríið, hvar og hvernig? Svíþjóð, Usa, Finnland, gamla góða Ísland? allt þetta eða bara eitthvað allt annað.
Febrúar hefur líka sundum nú í seinni tíð verið mánuður hitameta, þar sem hitinn hefur farið upp í 18 c, en í ár er hann alveg hreint frábærlega flottur, snjór og frost og sól, frábærlega flott vetrarveður!!
Í febrúar eru líka, bolludagur, sprengidagur og öskudagur - ægilega skemmtileg þrenning. Það kom upp frábær hugmynd um að við stelpurnar á deildinni minni yrðum persónurnar í Rauðhettu og úlfinum, ég fékk hlutverk veiðimannsins, en sú minnsta hlutverk úlfsins, þar sem hún var talin líklegust til þess að standast það að hræða börnin :) heheheh Sú stærsta er rauðhetta og sú nærststærsta amman, svo kem ég sem veiðimaðurinn og sú minnsta úlfurinn, skemmtileg uppröðun í hlutverkin:)
Hvað segið þið hvenig upplifið þið febrúar?

9 ummæli:

Guðbjörg Harpa sagði...

Ja mama maður er náttúrulega pínu sár yfir því að það sé ekkert minnst á afmælisbörn febrúarmánaðar. Febrúar er bara fínasti mánuður og í þeim mánuði hafa margir frábærir einstaklingar fæðst :)
En annar já það er bara rigning hjá mér og ég vona að það verði ekki út febrúarmánuð. Því frekar vildi ég fá feitt jólavísa heldur en rigningu í mánuð
knús
sakna þín
GHI

brynjalilla sagði...

til lukku með febrúar, og til hamingju með afmælið febrúarstelpa. HMM febrúar flýgur áfram í frosti og stillum hér í Sverige, gott að hjóla og mátulega kallt. Fer ekki mikið yfir mínus 10 gráðurnar Birtan vex og það iljar upp sálartetrið sem uppveðrast og heimtar blóm, sumaryl og kampavín í glasi, sumarþráin vex með hverjum deginum. Mig langar til Póllands í fríinu mínu en bara stutta ferð því ég tími ekki að missa af sænsku sumri með blómakrönsum, hamingju í líki sumarkjóla, kvölda á veröndinni og nestisferða á ströndina. (upptalningin á að freista þín Hanna til að eyða hluta af sumarfríinu hjá mér híhí)

Nafnlaus sagði...

Humm febrúar er frábær mánuður alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast og það versta er að hann er svo fljótur að líða. Mér finnst allavega ég nýbúin að vera að gera mánaðarskipulag og vá mánuðurinn er hálfnaður ;)
ENNN hvernig var þorrablótið???
Eg ætla að vera Englaprinsessa á öskudaginn og þarf að fara að sauma mér pils... svaka pæja ;)
hehe

Nafnlaus sagði...

það er svo einkennilegt að ólíkt svo mörgum öðrum finnst mér janúar og febrúar vera alveg ótrúlega fljótir að líða. það liggur við að hjá mér séu það jólin og svo bara vorið. Annars líkar mér við allar árstíðir, eru allar góðar bara á mismunandi vegu og nýt þeirra allra.
kveðjur

Guðbjörg Harpa sagði...

Hæ gleðilegan Valentínus :) fór í bíó og kaffihús EIN í tilefni dagsins. :) en svona er það að vera einstakur þá getur maður gert svona hluti einn og engin að pirra mann

:) knús og piparkveðjur frá
Guggunni þinni

Guðbjörg Harpa sagði...

jæja nú er komin konudagurinn hjá þér en það eru enn margir tímar í það hjá mér.
Langði bara að segja hæ og knús til þín :)

Guðbjörg Harpa sagði...

Hvernig er þetta á ekkert að koma með einhverjar kóra eða fylleríissögur hér????????????????????????????????!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!?????????????????????????

Nafnlaus sagði...

eru engar frettir hjá Stóru systur?

Nafnlaus sagði...

hæ spæ
Febrúar, stuttur mjög þægilegt, bolludagur, sprengidagur og öskudagur mjög gaman,
en hvernig er það á bara að vera ein færsla í febrúar... hann er nú ekki alveg svo stuttur er það nokkuð?
hafðu það gott og já hvað ætlar þú að vera á morgun? ég vil mynd!
kossar og knús