föstudagur, 2. febrúar 2007

enn og aftur komin helgi

Föstudagsseinnipartur, sit með tölvuna í kjöltunni, Garðar Cortes í tækinu, Kristall í hendi.
Skemmtileg vinnuvika á enda. Það voru leynivinadagar í vinnunni, mið-fös, magnað hvað svona smá tilbreyting í hvers daginn gerir lífið skemmtilegt, litlar gjafir, gott með kaffinu og falleg orð.
Fékk þessa fallegu visku frá leynivini mínum á miðvikudaginn.

Í dag

Dagurinn í dag
er dagurinn þinn.
Þú getur gert við hann
hvað sem þú vilt.

Gærdaginn áttir þú.
Honum getur þú ekki breytt.
Um morgundaginn veist þú ekki neitt.

En daginn í dag átt þú.
Gefðu honum allt sem þú megnar.
Svo einhver finni í kvöld
að það er gott að þú ert til.



Þetta er heilræði sem ætti að fylgja manni hvern dag, en því miður týnist ég allt of oft í vangaveltum og óánægju yfir því liðna og áhyggjum og stessi yfir því sem er ókomið.
Tíminn líður allt of hratt og er allt of dýrmætur til þess að leyfa sér að eyða honum í svona neikvæðni. Því miður þá virðist það vera svo að þeir sem hafa lent í lífsháska og þeir sem eiga í erfiðum veikindum og vita með nokkurri vissu að ekki sé langt eftir á þessu jarðríki okkar, það er þetta fólk sem lifir fyrir daginn í dag, og gleðst yfir því sem hann færir þeim - höfum það í huga.

En það er líka annar hópur sem lifir bara fyrir daginn í dag og gleðst innilega í hjarta sínu yfir hinu smáa, það eru börnin- tökum okkur þau til fyrirmyndar.


Talandi um það að njóta dagsins í dag og því sem hann hefur upp á að bjóða.
Ég ætla á megafyllerí í kvöld, það er starfsmannapartý og ekki spurning að nýta tækifærið og detta ærlega íða með þessum hressu kellum:) án þess svo mikið sem spá í hvaða áhrif fylleríið hefur á morgundaginn - það er vandamál morgundagsins!!

Ég vil tileinka heilræðið hér að ofan vinkonum mínum sem gefa lífi mínu fyllingu og gleði.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jamm og jæja þetta var fallegt sem þú fékkst frá vini þínum. Þannig að ég hugsaði mér að best væri að renna á Akureyri og fara að hitta þig í þynkunni og draga þig út til að fa þér þynkumat....
Hlakka til að eyða með þér deginum í spjall og gaman.

hannaberglind sagði...

góð ákvörðun sæta mín, hlakka til að hitta þig:)

Guðbjörg Harpa sagði...

snökt snökt
Mjög góð og falleg heilræði.
Já stundum erfitt að taka þau og fara eftir þeim en sem betur fer hepnast það stundum.
Ég vona að lífið verði eins gott áfram og það hefur verið hingað til og að við eigum eftir að hittast í lok sumars og gera eitthvað geggjað saman. Svona eins og við erum þekktar fyrir :)

Það er gott að eiga þig fyrir vinkonu Hanna mín og ég hlakka til að heyra í þér bráðum

(eitt úr bókinni frá þér)
Vinátta er ekki búin til,
hún skapast :)

Knús
þín Guðbjörg Harpa