föstudagur, 26. janúar 2007

skrítin frænka!!


Ég dreif svo Jón Egli og Lárus Inga með mér út á göngu síðasta laugardag þar sem ég þurfti að fara á bókasafnið og finna lopapeysuuppskrift þar sem ég er að prjóna á þá bræður lopapeysurnar sem ég hef ætlað mér að gera síðan þeir fæddust!!! Þetta var yndislegur göngutúr, þó að hann flokkist nú samt væntanlega ekki undir heilsurækt, þar sem farið var yfir á hraða 3ja ára:) Þar sem við erum að vinna okkur heim á leið var Lárus kominn á undan mér og Jón Egill hafði dregist afturúr, ég kalla til Lárusar "stoppaðu við verðum að bíða eftir Jóni Agli" þá lítur hann á mig þungur á brún og segir "hann heitir ekki nagli" !!! þeir hömsuðust svo við það báðir að segja mér að hann héti Jón Egill en ekki nagli - rugluð þessi frænka !!!

Fór svo til Möggu móðu (móðursystur mömmu, svona eins og í Elíasar bókunum) til að fá lánaða sokkaprjóna svo ég geti byrjað á ermunum, en ég er sem sagt búin með tvo búka. Að sjálfsögðu átti hún prjóna bæði no 3 og 41/2 eins og gamalli frænku sæmir:)

1 ummæli:

brynjalilla sagði...

hahaha nagli nei það er víst skrýtið nafn, minnir mig á misskilning þegar vinir okkar Vals héldu í marga mánuði að barnið okkar héti Dreki!