föstudagur, 26. janúar 2007

lati bloggarinn

já ég ér kannski ekki mjög dugleg að blogga en til að bæta gráu ofan á svart þá hef ég ekki komist inn á bloggið í vikunni, sem skírir innslagið hér á undan ég bara varð að skella því inn - heitir ekki nagli - heheheh

Þessi vika er búin að vera bara nokkuð góð. Byrjaði með skipulagsdegi á mánudaginn, margt gott sem við komumst yfri að gera, góður dagur miklar umræður um þarfa hluti. Ég búin að vera í vinnuhópi ásamt tveimur öðrum síðan í október, að vinna tillögur að nýju dagskipulagi. Það gekk mun betur en ég hafði þorað að vona, þ.e. við áttum von á mjög heitum og öflugum umræðum. Ekki svo að skilja að það hafi ekki skapast umræður og fólk skipts á skoðunum, en umræðan var fagmannleg, margar góðar skoðanir komu fram, svo er bara að sjá hvað kemur út úr þessu öllu saman þegar nefdin nær að hittast aftur og vinna úr þeim punktum sem fram komu, en allir voru látnir segja sína skoðun á tillögunni. Já maður verður að vita hvers vegna verið er að breyta og hvað er það sem verið er að sækjast eftir með breytingunum.

Var gestakokkur hjá Snjólaugu stjóra á miðvikudaginn, eldaði hlýra að hætti Sigga Hall. svaka góður réttur það, sem féll í kramið á matargestum, 4 konum á aldrinum 19-54. Horfðum svo á Bollywood- mynd eftir matinn, algjöra snilld sem ég man ekki hvað heitir en er endurgerð mydnarinnar Hroki og heypidómar (æji kann ekki að skrifa nafið á ensku) findin og skemmtileg mynd, með dansi, söngvum og flottum búningum.

Er svo að vinna í kvöld, fæ svo þá frændur mína Jón og Lárus um hádegi á morgun, en þeir ætla að gista í Keilusíðunni hjá Hönnu Berglind (eins og þeir kalla mig alltaf þessa dagana:) Svo það er heljarinnar dekur framundann.

Vona svo bara að strákarnir okkar í Þýskalandi standi sig á morgun og sunnudag- áfram Ísland!!!!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æ núna var ég að vakna og mig langar bara í svona Hönnu pönnuköku með hrísgrjónum og alskonar sulli og hvítlaukssósu. Þú værir kannski til í að skreppa til mín :)

GH

hannaberglind sagði...

væri sko til í að fá mér creps með þér harpa mín með mikilli hvítlaukssósu og bjór.

Nafnlaus sagði...

NAMM þetta hljómar girnilega....
kannski að ég komi bara í heimsokn :) en það er svo langt á milli okkar
knús