mánudagur, 15. janúar 2007

Janúar

Enn og einn janúarmánuður upprunninn og hvað þýðir það, jú maður skal huga að heilsunni, laga mataræðið, hreyfa sig og taka inn vítamín. Og ég læt glepjast enn einu sinni - það er að þetta sé rétti mánuðurinn til að byrja, búin að kaupa Spirulina, drekk fullt af vatni og er byrjuð í sundleikfiminni. Þetta er svosem allt gott og blessað og ekki spurning að mér veitir ekkert af þessu, síðasti mánuður ársins 2006 var vigtinni minni ekki hliðhollur. En því er ekki að neyta að ég er ekki í þessu af heilum hug, enda ekki ennþá farin út að labba, eins og mig langar reyndar til að gera. Kannski að inntaka Spirulina verði til þess að hrista af mér slenið og ég endi úti á göngu, eða kannski löngunin komi bara með hækkandi sól, það er alltaf svo yndislegur tími.
En allavegana, göngutúrar eða ekki þá er allavegana magnað að vera byrjuð aftur í sundleikfiminni eftir mánaðar jólafrí. Fyrsti tíminn var í kvöld og það var yndislegt að liðka og teigja á stirðum og aumum líkamanaum. Svona í tilefni af fyrsta sundtíma ársins þá ætla ég að láta fylgja hérna með vísu sem ég samdi fyrir litljujól sundleikfiminnar. Það var nefnilega þannig að ég, já ég sjálf, stakk upp á því að allir kæmu með frumsamið ljóð á litlujólunum. Almennt var vel tekið í þessa hugmynd mína, en hún þróaðist þó í að það laumast mátti í smiðju annarra ef fólki hugnaðist ekki að setjast niður og semja. Svo nálgast litlujólin þá allt í einu rann upp fyrir mér að ég kann ekkert að semja vísur - ekki séns. En það kom samt ekki til greina annað en að setja saman vísu það var jú ég sem stakk upp á þessari vitleysu. Tveimur kvöldum fyrir litlujólin kom svo vísan bara alveg eins og að sjálfu sér.

Hún tosar sig og teygir
fettir og brettir og beygir.
Litla stelpan með mömmu sinni
í gamlingjamanna leikfiminni.

7 ummæli:

brynjalilla sagði...

Mikid er gaman ad thu ert aftur byrjud ad blogga elskan mín, hvad er annars spirulina, hljómar eins og eitthvad gott og skynsamlegt i kroppinn. Vaeri sko til ía ad teygja mig beygja med ther í heitri íslenskri sudlaug.

Nafnlaus sagði...

Ohh ég sakna nú mest heitu pottanna góðu. Það er frábært að þú skulir vera byrjuð að blogga aftur og hipp hipp húrrey drífa sig út að labba. Og skella sér svo til San Francisco :)

knúsí músí
Guðbjörg Harpa

Nafnlaus sagði...

Gott að "heyra" í þér aftur Hanna mín. Spirulina er alger innspýting og gott að taka þessi fjölvítamín í svartasta skammdeginu.
Ég er algerlega sammála þér að sund er allra meina bót. Fór sjálf í mánaðar jólafrí og hef ekki verið eins stirð lengi. Það væri nú gaman að fara að berja þig augum aftur, alltof langt síðan síðast.

Kveðja Nanna

Nafnlaus sagði...

frábært að þú sért farin að blogga aftur. og vá bara dugleg þannig að þú verður svaka heilsufrík þegar líður á vorið. ég er líka að taka mig í gegn í líkamsræktinni kannski að við löbbum Tindastólinn í sumar ;)
heyri í þér fljótlega
knús knús
Ása

Nafnlaus sagði...

Hvur djöfullinn er þetta, er algjör ritstífla í Þorparanum.

Nafnlaus sagði...

já núna verðuru að bloggar aftur ... og ég mana þig til að lesa 100 staðreyndir um mig á blogginu mínu:)
Sjálf fór ég og paukti mér árskort ... já árskort í bjarg og núna er það að duga eða drepast!! Það fór ekki of vel í mig að þyngjast alli í einu yfir jólin. Ekki allveg minn stíll .... eheheheheh
annars þá kíkjuru á bloggið mitt stelpa:)
Kv. Krullan

Nafnlaus sagði...

Flott vísa
Já og blogga meira og hvar eru myndirnar sem þú ætlaðir að setja inn ég bíð spennt...
Kveðja frá Norge